top of page
Allskonar prentun og gjafavara.jpg
Lógó Instaprent

Instaprent.is

Söluaðili:

Myndó ljósmyndastofa

Sími

898-1795

Netfang

Staðsettning

Þverholt 5, 270 Mosfellsbær

Kennitala     og     VSK númer

460607-1670                   94612

Skilmálar og skilyrði

Almennt

Afhending

Skilafrestur

Trúnaður

Instaprent áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, einnig áskilur Instaprent sér þann rétt að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.


Um leið og gengið er frá pöntun og hún greidd fer ferlið í gang. Það tekur venjulega 5-7 virka daga að fá vöruna senda en það fer þó allt eftir hversu mikið er að gera hverju sinni. Gæti verið styttra og gæti tekið ögn lengri tíma á álagstímum eins og fyrir jól. Mælum við með að þegar um gjafir sé að ræða að panta tímanlega.

Öllum pöntunum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Instaprent ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Instaprent og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.

 

 


Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með.

Skattar, gjöld og netverð.

Verð í netversluninni er með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. Athugið að verðið í netversluninni getur breyst án fyrirvara og að öll verð eru birt með fyrirvara um myndabrengl eða prentvillur.

 

 


Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað.

Við erum á samfélagsmiðlum

  • Facebook
  • Instagram
logo_ip_black.png
bottom of page